Sumardagurinn fyrsti í Reykjavík

Tufti í skrúðgöngu
Tufit í skrúðgöngu

Það ætti engum að leiðast á sumardaginn fyrsta í Reykjavík á morgun. Það verður ýmislegt í boði, skrúðgöngur, leikir og skemmtun víðs vegar um borgina.

Skátar í sumarskapi

Skátarnir verða með sumarhátíð á fjórum stöðum í borginni.

Í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum verður sannkallað skátafjör þar sem fjölskyldur geta átt notalega samveru. Skátafélögin Skjöldungar, Garðbúar og Landnemar verða með fjölskylduvæna frá klukkan 13:00- 16:00. Hoppukastalar, klifurveggur og ýmis leiktæki fyrir börnin. Einnig verður hægt að rista sykurpúða yfir varðeldi og njóta útiveru í skemmtilegu og öruggu umhverf. Hringekjan og rugguskipið Elliði verða opin og kiðlingar taka vel á móti gestum í fjárhúsunum. Opið verður í kaffihúsinu hjá Bæjarins Beztu. Hefðbundinn aðgangseyrir gildir.

Skátafélagið Árbúar og Árbæjarsafn halda sumardaginn fyrsta hátíðlegan eins og fyrri ár. Klukkan 12:30 leggurt skrúðganga leggur af stað frá Árseli - Skátafélagið Árbúar og Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts leiða gönguna. Skrúðgangan endar á Árbæjarsafni þar sem boðið verður upp á skátaleiki. Veitingasala, popp og kandífloss verður í Litla Laufási og Kvöldvaka við Álfóhólinn.

Í Vesturbænum fagna Ægisbúar sumarkomu frá klukkan11-14. Boðið verður upp á sannkallað fjölskyldufjör, hoppukastalar & sölutjöld þar sem pylsur, gos, svalar, snuð, candyfloss og fleira verður til sölu. 

Skátafélagið Vogabúar í Grafarvogi ætla að fagna sumri með stæl við Frístundamiðstöðina Gufunesbæ. Skólahljómsveit Grafarvogs mætir á svæðið og flytur nokkur lög. 

Skrúðgöngur, tónlist og fjölskylduskemmtun

Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar fagnar sumrinu með sínu árlega maraþoni, áheita tónleikum. Fjörið byrjar með skrúðgöngu frá Melaskóla klukkan 11:00 og marserað er í gegnum hverfið að Vesturbæjarskóla. Þar tekur vöfflu- og poppkornsilmurinn á móti gestum með frábærri kaffihúsastemningu ásamt tónleikum SVoM sveitanna.

Boðið verður upp á sumarhátíð í Fossvogs- og Bústaðahverfi. Hátíðin hefst með myndlistasýningu leikskólabarna hverfisins í anddyri Bústaðakirkju klukkan 11.00. Skemmtidagskráin hefst svo klukkan 11.30 með tónlist og dansi. Að því loknu fer skrúðganga frá kirkjunni niður í Vík þar sem boðið verður upp á fjölskylduskemmtun.

Víðavangshlaup ÍR fer nú fram í 111 sinn. Víðavangshlaupið er eitt vinsælasta og fjölmennasta 5 km keppnishlaupið sem fram fer á Íslandi og fer hlaupið fram í hjarta Reykjavíkurborgar þar sem hlaupaleiðin liggur um miðborgina.  Nánari upplýsingar um hlaupið og lokanir í miðborginni

Boðið verður upp á sannkallaða fjölskyldugleði við Elliðaárstöð á sumardaginn fyrsta þar sem krakkar og fullorðnir á öllum aldri geta leikið sér og haft gaman. Vatni verður hleypt á Vatnsleikjagarðinn, kaffihúsið Elliði og Gestastofa Elliðaárstöðvar opna dyr sínar fyrir gestum dalsins, skemmtilegir DJ-tónar munu óma um svæðið, Hugmyndasmiðir bjóða upp á fjölskyldusmiðju í Gestastofunni og hægt verður að taka þátt í hjóladagskrá Reiðhjólabænda. Fjölskyldudagskrá Elliðaárstöðvar verður frá 13:00–15:00, samhliða Hjólahátíð Reiðhjólabænda frá 11:00–15:00.

Krakkamót á sumardaginn fyrsta í Grafarholti. Frísbígolffélag Reykjavíkur í samstarfi við Folfarann bjóða á Krakkamót í frisbígolfi á sumardaginn fyrsta, klukkan 12.00, á Græningjanum í Grafarholti. Ekki er gerð krafa um kunnáttu í frisbígolfi, byrjendur jafnt sem vanir krakkar og ungmenni 18 ára og yngri eru velkomin. Folfarinn verður á staðnum og lánar diska ef einhverjir vilja prufa en eiga ekki diska, og býður einnig 10% afslátt af byrjendasettum og barnadiskunum frá Discraft. Og ekkert mótsgjald!

Græna gangan - baráttudagur náttúrunnar byrjar með kröftugri grænni göngu frá Arnarhóli að Hljómskálagarðinum. Fólk byrjar að safnast saman við Arnarhól klukkan 13:30 og gengið verður af stað um hálftíma síðar. Öll náttúruverndarhreyfingin í landinu og önnur félög vinna hörðum höndum að stærstu náttúrugöngu sem haldin hefur verið í fjölmörg ár.

UNGI er alþjóðleg sviðslistahátíð fyrir börn og verður með opnunarhátíð á sumardaginn fyrsta í Hafnarhúsi frá klukkan 14.00-16.00. Leikhópurinn Lotta verður með skemmtilega söngvasyrpu og  sirkushópurinn Hringleikur kynnir nýtt verk sem heitir Sjómennirnir. Hátíðin er haldin annað hvert ár í Reykjavík í tengslum við Barnamenningarhátíð. Boðið er upp á innlendar og erlendar sviðslistasýningar fyrir börn og ungmenni auk smærri viðburða. 

Á sumardaginn fyrsta má ennfremur fara á sýninguna Íslensk skrímsli og kynjaverur lifna við sem er til sýnis í Þjóðminjasafninu í tilefni Barnamenningarhátíðar. Sýnd eru verk eftir nemendur í sjöunda bekk Laugalækjarskóla og þriðja, fimmta og sjötta bekk Grandaskóla, sem túlka íslenskar kynjaverur á fjölbreyttan og frumlegan hátt. Verk nemendanna eru sýnd í barna- og fjölskyldurými Þjóðminjasafns Íslands.

BIG BANG tónlistarhátiðin verður svo með dynjandi tónlistardagskrá Í Borgarbókasafninu Gerðubergi og Tónskóla Sigursveins í Hraunbergi í Breiðholti á sumardaginn fyrst. Tónlist fyrir alla og smiðjur á bókasafninu.