VÆB semur lag Barnamenningarhátíðar 2026
Lag Barnamenningarhátíðar í ár verður samið af bræðrunum í VÆB þeim Matthíasi Davíð Matthíassyni og Hálfdáni Helga Matthíassyni.
Þema Barnamenningarhátíðar í ár er „samkennd og samfélag “ og fengu nemendur í 4. bekk í borginni það verkefni að svara ýmsum spurningum um hvað felist í orðunum samkennd og samfélag.
Texti lagsins er byggður á svörum barnanna og lagið verður frumflutt af Væb í Eldborgarsal Hörpu þann 20. apríl næstkomandi.