VÆB semur lag Barnamenningarhátíðar 2026

VÆB dúettinn skipaður bræðrunum Matthíasi og Hálfdán.

Lag Barnamenningarhátíðar í ár verður samið af bræðrunum í  VÆB þeim Matthíasi Davíð Matthíassyni og Hálfdáni Helga Matthíassyni.

Þema Barnamenningarhátíðar í ár er „samkennd og samfélag “ og fengu nemendur í 4. bekk í borginni það verkefni að svara ýmsum spurningum um hvað felist í orðunum samkennd og samfélag. 

Texti lagsins er byggður á svörum barnanna og lagið verður frumflutt af Væb í Eldborgarsal Hörpu þann 20. apríl  næstkomandi.