Erindrekar undirbúa BIG BANG tónlistarhátíðina

Erindrekarnir við Borgarbókasafnið í Gerðubergi

Big Bang Festival er ævintýraleg tónlistarhátíð fyrir unga áheyrendur sem haldin er á Sumardaginn fyrsta. Erindrekarnir gegna mikilvægu hlutverki á hátíðinni og komu saman á dögunum til að undirbúa hátíðina.

Big Bang hátíðin í ár verður haldin í Borgarbókasafninu Gerðubergi og Tónskóla Sigursveins í Hraunbergi í Breiðholti á sumardaginn fyrsta, 23. apríl 2026 klukkan 11–16 og er markmið hátíðarinnar er að auka aðgengi barna að tónlist. 

Mikilvægir erindrekar

Erindrekarnir er hópur 10-12 ára barna sem koma úr öllum hverfum borgarinnar og eru 9 talsins. Þau gegna mikilvægu hlutverki á Big bang hátíðinni því þeir sjá um að taka á móti gestum sem mæta á tónlistarhátíðina. Þau kynna tónleika og uppákomur, taka viðtöl við tónlistarfólk og eiga stóran þátt í því að búa til ógleymanlega stemmningu  þennan dag. 

Frá Big Bang tónlistarhátíðinni 2025
Frá Big Bang tónlistarhátíðinni 2025

Boðið verður upp á fjölbreytta tónlist, smiðjur og innsetningar. Frítt er inn á alla viðburði.

Öll velkomin.

Sjá dagskrá Big Bang tónlistarhátíðarinnar