Erindrekar undirbúa BIG BANG tónlistarhátíðina
Big Bang Festival er ævintýraleg tónlistarhátíð fyrir unga áheyrendur sem haldin er á Sumardaginn fyrsta. Erindrekarnir gegna mikilvægu hlutverki á hátíðinni og komu saman á dögunum til að undirbúa hátíðina.
Big Bang hátíðin í ár verður haldin í Borgarbókasafninu Gerðubergi og Tónskóla Sigursveins í Hraunbergi í Breiðholti á sumardaginn fyrsta, 23. apríl 2026 klukkan 11–16 og er markmið hátíðarinnar er að auka aðgengi barna að tónlist.
Mikilvægir erindrekar
Erindrekarnir er hópur 10-12 ára barna sem koma úr öllum hverfum borgarinnar og eru 9 talsins. Þau gegna mikilvægu hlutverki á Big bang hátíðinni því þeir sjá um að taka á móti gestum sem mæta á tónlistarhátíðina. Þau kynna tónleika og uppákomur, taka viðtöl við tónlistarfólk og eiga stóran þátt í því að búa til ógleymanlega stemmningu þennan dag.
Boðið verður upp á fjölbreytta tónlist, smiðjur og innsetningar. Frítt er inn á alla viðburði.
Öll velkomin.
Sjá dagskrá Big Bang tónlistarhátíðarinnar