16285 Yfirborðsmerkingar 2026

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Yfirborðsmerkingar 2026, útboð nr. 16285.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið snýst um viðhald á yfirborðsmerkingum í Reykjavík. Um er að ræða formerkingar, mössun akreinalína og sprautuplöstun kantlína, mössun og málun stakra merkinga og málun á bílastæðum og göngu- og hjólastígum.

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 14:00 þann 27. mars 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 16. apríl 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda