Hægt að sækja um afslátt af leikskólagjaldi – fyrri afslættir falla niður
Ný gjaldskrá og nýir afsláttarflokkar í leikskólum Reykjavíkur taka gildi um næstu mánaðarmót. Fyrri afslættir falla út og því mikilvægt að sækja um afslátt að nýju fyrir 1. apríl.
Leikskólaleiðin í Reykjavík tekur gildi 1. apríl 2026. Fyrri afslættir námsmanna og öryrkja falla út og afslættir einstæðra taka breytingum. Nú munu tekjur foreldra og forsjáraðila ráða í hvaða afsláttarflokki þeir lenda.
Samkvæmt nýrri gjaldskrá og reglum um leikskólaþjónustu Reykjavíkurborgar geta foreldrar barna með lögheimili í Reykjavík sem eiga barn í leikskóla borgarinnar sótt um afslátt af leikskólagjöldum ef tekjur þeirra eru innan tekjumarka gjaldskrárinnar.
Ný gjaldskrá miðast við gjaldfrjálsan leikskóla fyrir 36 stunda vistun á viku og er eingöngu greitt fyrir fæði ef dvalartíminn er innan þessara marka. Námsgjald fyrir 38 tíma verður einnig mjög hóflegt eða um 7000 krónur á mánuði.
Foreldrar og forsjáraðilar sem sækja um afslátt fyrir 1. apríl næstkomandi munu fá afslátt strax við gildistöku gjaldskrárinnar 1. apríl 2026. Starfsmannaafsláttur verður 50% af námsgjaldi og systkinaafsláttur helst óbreyttur.
Nánar um afsláttarflokka
Allir einstæðir foreldrar geta sótt um afslátt sem fer eftir ákveðnum viðmiðum um tekjur. Afsláttur af námsgjaldi fyrir einstæða foreldra er frá 40% til 75%.
- Lægsta tekjuviðmið miðar við árstekjur undir 8 milljónum króna á ári og veitir 75% afslátt af námsgjöldum.
- Næstlægsta tekjuviðmið miðar við árstekjur á bilinu 8 – 13 milljónir króna á ári og veitir 50% afslátt af námsgjöldum.
- Hæsta tekjuviðmiðið gildir fyrir einstæða foreldra með tekjur yfir 13 milljónir króna á ári sem veitir 40% afslátt af námsgjöldum.
Afslættir og tekjuviðmið fyrir hjón og sambúðarfólk miða við tekjur undir 18 milljónum króna á ári og afslættir á bilinu 20 til 40% af námsgjaldi.
- Lægra tekjuviðmið miðar við árstekjur undir 11 milljónum króna á ári og veitir 40% afslátt af námsgjaldi.
- Hærra tekjuviðmið miðar við árstekjur frá 11 – 18 milljónum króna og veitir 20% afslátt af námsgjaldi.
Tekjutengdur afsláttur – umsókn foreldra um afslátt af dvalargjöldum leikskóla er byggð á því að foreldrar samþykki að fram fari vinnsla á persónuupplýsingum þeirra varðandi það hvort tekjur þeirra séu innan tiltekinna viðmiða sem ákveðin eru í gjaldskrá Reykjavíkurborgar. Viðmiðin byggja á heildartekjum samkvæmt skattframtali Ríkisskattstjóra.
Frá 1. apríl 2026 til 30. júní 2026 gildir til bráðabirgða að foreldrar staðfesti að upplýsingar sem þeir veita séu til samræmis við heildartekjur á síðasta ári samkvæmt skattframtali. Ef um er að ræða hjón eða sambúðarfólk er nóg að annað foreldrið sæki um afsláttinn og veiti upplýsingar um heildartekjur heimilisins samkvæmt skattframtali.
Umsóknarferli – hvernig er sótt um afslátt?
- Umsóknir fara fram í Völu leikskóla. Kerfið sækir grunnupplýsingar úr Þjóðskrá.
- Umsókn er afgreidd sjálfvirkt með hliðsjón af tekjuviðmiðum.
- Frá 1. júlí 2026 verður hægt að samþykkja sjálfvirka gagnaöflun frá Ríkisskattstjóra. Þegar um er að ræða hjón eða sambúðarfólk þurfa báðir foreldrar að samþykkja gagnaöflun.
Skilmálar og vinnsla persónuupplýsinga (1. apríl – 30. júní 2026)
- Foreldrar staðfesta að upplýsingar séu í samræmi við skattframtal síðasta árs.
- Ef um hjón/sambúðarfólk er að ræða dugar að annað foreldri sæki um og gefi upp heildartekjur heimilisins.
- Nánari upplýsingar um skilmála og vinnslu persónuupplýsinga
Hvert má leita með spurningar eða áhyggjur?
- Almennar fyrirspurnir og afturköllun samþykkis: sfs@reykjavik.is
- Persónuverndarfulltrúi sveitarfélagsins: personuverndarfulltrui@reykjavik.is
- Persónuvernd (kvartanir): postur@personuvernd.is