Nýtt hverfi í Höllum kynnt á opnum fundi borgarstjóra
Vinningstillaga hugmyndaleitar vegna rammaskipulagsgerðar á svæði Halla og nágrennis í Úlfarsárdal verður kynnt á opnum kynningarfundi borgarstjóra um húsnæðismál, föstudaginn 20. mars.
Hugmyndaleitin fól í sér mótun á rammaskipulagi þar sem kallað var eftir skýrri meginhugmynd svæðisins. Helstu áhersluatriði voru yfirbragð byggðar, landnotkun, byggðamynstur, þéttleiki, íbúðasamsetning, innviðir og tengingar við nærliggjandi hverfi, náttúru og stofnkerfi. Markmiðið með hugmyndaleitinni var að fá fram bestu mögulegu framtíðarsýn og lausnir að uppbyggingu á hverjum stað.
Fyrir hugmyndaleitina var leitað til arkitektastofa sem hafa sýnt framsýni og næmni í verkefnum sínum og hafa reynslu í þróun rammaskipulags og skipulagningu nýrra hverfa í Reykjavík. Nafnleynd var viðhöfð við val á tillögu til áframhaldandi þróunar og í kjölfarið verður gerður þjónustusamningur um áframhaldandi þróun rammaskipulagsins og gerð deiliskipulags fyrir hluta svæðisins.
Valnefnd skipuðu fimm starfsmenn á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, með sérfræðiþekkingu í skipulagi, landslagsarkitektúr, arkitektúr, samgöngum og borgarhönnun. Til ráðgjafar fyrir valnefnd voru svo starfsmenn hinna ýmsu deilda gatna- og innviða á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, skrifstofu borgarstjóra og velferðarsviði Reykjavíkur.