16270 Rammasamningur - Dúklögn, EES útboð

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Rammasamningur - Dúklögn, EES útboð nr. 16270.

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar óskar eftir að fá einingarverð í tilfallandi vinnu vegna dúkalagningar. 
Samningurinn gildir í þrjú ár. 
Um er að ræða útboð á rammasamning þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð. Rammasamningsútboð þetta er ekki loforð um ákveðið magn viðskipta. 

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 13:00, þann 11. mars 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 15. apríl 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda