16278 Framleiðsla máltíða fyrir Velferðarsvið. EES

Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar f.h. Velferðarsvið  óskar eftir tilboðum í Framleiðsla máltíða fyrir Velferðarsvið, EES útboð nr. 16278.

Óskað er eftir tilboðum í framleiðslu, pökkun og afhendingu á máltíðum fyrir borgarbúa sem ekki geta annast matseld sjálfir, annars vegar fullelduðum og pökkuðum máltíðum til upphitunar og heimsendingar og hins vegar heitum fullelduðum máltíðum í móttökueldhús kaupanda samkvæmt þessum útboðsgögnum. Um er að ræða almennt útboð þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð.

Hámark samanlagðra viðskipta innan samnings fyrstu 22 mánuðina er 1.485.000.000 án vsk.

Verði samningnum framlengt getur heildar virði hans mest orðið kr. 3.105.000.000 án vsk. 

Rammasamningurinn gildir frá töku tilboðs og út samningstímann eða þar til hámarki samanlagðra viðskipta er náð, hvort heldur verði á undan.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 6. mars 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:15,  þann 9. apríl 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur en sjá má opnunarskýrslu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda