16269 Leiksskólinn Jörfi. Kennslustofur, hönnun, smíði og lóðafrágangur

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Leiksskólinn Jörfi.  Kennslustofur, hönnun, smíði og lóðafrágangur, útboð nr. 16269.

Lauslegt yfirlit yfir verkið:  
Verkið felur í sér hönnun, smíði, flutning og uppsetningu tveggja kennslustofa ásamt tengibyggingu. Verkefnið nær einnig til  framkvæmdar jarðvinnu, gerðar undirstaða og lagningar allra lagna í grunni. Að auki felur verkið í sér lóðarvinnu, lagningu og tengingu stofnlagnavið við eigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun. 
Kennslustofurnar eru hver um sig 14,9m x6,4m eða um 96 m2á einni hæð ásamt tengibyggingu, um32 m2, samtals er því nýja húsnæðið um 224m2að stærð. Kennslustofurnar skulu vera byggðar úr timbri. Hverja kennslustofu á að vera hægt að flytja í heilu lagi,setja niður á lóð leikskólans og tengja saman meðtengibyggingu.

Verkið felur í sér eftirfarandi verkþætti:

Hönnun og smíði tveggja kennslustofa og tengibyggingar viðleikskólann, þar með talið jarðvinnu og gerð undirstaða fyrir kennslustofurnar (alverktaka).

Lóðarfrágangá tengdum svæðum samkvæmt fyrirliggjandi hönnun.

Lagningu stofnlagna fyrir kennslustofur ásamt tengingu við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun.

Áætluð lok framkvæmdatíma: 30. mars 2027. 

 

Vettvangsskoðun:  Leikskólinn Jörfi ,  kl. 15:30, 5. mars 2026. 

 

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 12: þann 23. febrúar 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 23. mars 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda