English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Upplýsingatækniþjónusta Reykjavíkurborgar (UTR) veitir fjölbreytta þjónustu við notendur og starfseiningar þvert á svið borgarinnar og annast umfangsmikinn miðlægan rekstur tölvukerfa og viðhald fjölmargra upplýsingakerfa.
Hlutverk upplýsingatækniþjónustunnar er að tryggja rekstrarsamfellu upplýsingatækniinnviða, innkaup á tæknibúnaði, veita tæknilega þjónustu og ráðgjöf á sviði tæknilegra lausna, þróa virðisaukandi þjónustur og styðja við stafræna vegferð borgarinnar.
Markmiðið er að vera með örugga og áreiðanlega upplýsingatækniinnviði á einfaldan og skilvirkan hátt.
UTR rekur eina umfangsmestu upplýsingatækniþjónustu landsins, tólf þúsund tölvur og snjalltæki á rúmlega þrjúhundruð starfsstöðvum. Notendur upplýsingatæknibúnaðar eru öll svið og skrifstofur Reykjavíkurborgar, verkfræðingar, borgarfulltrúar, nemendur, kennarar, starfsmenn íþróttamannvirkja, gestir bókasafna og almenningur svo dæmi séu tekin. Kerfin sem UTR ber ábyrgð á eru einnig fjölbreytt. Um er að ræða póstkerfi, afgreiðslukerfi, velferðarkerfi, bókhaldskerfi, umhverfisvöktunarkerfi, fjölmarga vefi og landupplýsingakerfi.