Back to the jobs page

Deildarstjóri

Drafnarsteinn auglýsir eftir deildarstjóra

Fullt starf Leikskólinn Drafnarsteinn 101
Apply

Drafnarsteinn er sex deilda skóli með 107 börnum. Skólinn starfar í þremur húsum á tveim starfsstöðvum, Seljavegi 12 og Drafnarstíg 4, vestast í vesturbæ Reykjavíkur.

Í starfi leikskólans leggjum við áherslu á að byggja upp frjótt og skapandi umhverfi þar sem börn fái notið sín og þau hafi möguleika á að læra af eigin reynslu og umhverfi þar sem áhugi þeirra og athafnaþörf eru virkjuð. Við styðjumst við verk­efnið 'Ótrúleg eru ævintýrin' eftir Sigríði J. Þórisdóttur en það er byggt á hugmyndafræði McCracken um 'heildstætt nám'. Þessi hugmyndafræði er nýtt sem grundvöllur í öllu okkar náms- og starfsumhverfi. Einnig er umhverfisvernd í hávegum höfð í skólanum og erum við í samvinnu við Landverd og erum Grænfánaskóli. Við höfum hlotið Regnbogavottun og erum með stórt gróðurhús sem við notum til ræktunar frá vori fram á haust.

Gildi Drafnarsteins eru samskipti, vinátta og virðing

Stefna leikskólans er að starfsfólk blómstri í leik og starfi, fái tækifæri á að þroska og dýpka fagmennsku sína og njóta sín í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

· Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra

· Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans

· Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni

· Sér um foreldrasamstarf á deildinni

· Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra

Menntunar- og hæfniskröfur

· Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)

· Reynsla af starfi á leikskólastigi

· Góð íslenskukunnátta og ritfærni er skilyrði

· Góð samskiptahæfni

· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

· Góð tölvukunnátta

Fríðindi í starfi

· Menningarkort – bókasafnskort

· Samgöngustyrkur

· Sundkort

· 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf

· Heilsuræktarstyrkur

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Um er að ræða 100% starfshlutfall og er afleysingarstaða í eitt ár eða eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Halldóra Guðmundsdóttir leikskólastjóri í síma 4113630 / 6188924 eða með því að senda fyrirspurn á halldora.guðmundsdottir@rvkskolar.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Apply