Deildarstjóri
Drafnarsteinn auglýsir eftir deildarstjóra
Drafnarsteinn er sex deilda skóli með 107 börnum. Skólinn starfar í þremur húsum á tveim starfsstöðvum, Seljavegi 12 og Drafnarstíg 4, vestast í vesturbæ Reykjavíkur.
Í starfi leikskólans leggjum við áherslu á að byggja upp frjótt og skapandi umhverfi þar sem börn fái notið sín og þau hafi möguleika á að læra af eigin reynslu og umhverfi þar sem áhugi þeirra og athafnaþörf eru virkjuð. Við styðjumst við verkefnið 'Ótrúleg eru ævintýrin' eftir Sigríði J. Þórisdóttur en það er byggt á hugmyndafræði McCracken um 'heildstætt nám'. Þessi hugmyndafræði er nýtt sem grundvöllur í öllu okkar náms- og starfsumhverfi. Einnig er umhverfisvernd í hávegum höfð í skólanum og erum við í samvinnu við Landverd og erum Grænfánaskóli. Við höfum hlotið Regnbogavottun og erum með stórt gróðurhús sem við notum til ræktunar frá vori fram á haust.
Gildi Drafnarsteins eru samskipti, vinátta og virðing
Stefna leikskólans er að starfsfólk blómstri í leik og starfi, fái tækifæri á að þroska og dýpka fagmennsku sína og njóta sín í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
· Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans
· Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
· Sér um foreldrasamstarf á deildinni
· Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
· Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
· Reynsla af starfi á leikskólastigi
· Góð íslenskukunnátta og ritfærni er skilyrði
· Góð samskiptahæfni
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
· Góð tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
· Menningarkort – bókasafnskort
· Samgöngustyrkur
· Sundkort
· 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
· Heilsuræktarstyrkur
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Um er að ræða 100% starfshlutfall og er afleysingarstaða í eitt ár eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Halldóra Guðmundsdóttir leikskólastjóri í síma 4113630 / 6188924 eða með því að senda fyrirspurn á halldora.guðmundsdottir@rvkskolar.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.