Back to the jobs page

Deildarstjórar í ungbarnaleikskóla í Bríetartúni

Deildarstjóri ungbarnaleikskóli Bríetartúni

Fullt starf Leikskólinn Bríetartúni 105
Apply

Deildarstjórar óskast í ungbarnaleikskóla Bríetartúni.

Ungbarnaleikskólinn er fjögra deilda leikskóli með 60 börnum á aldrinum 12 mánaða til þriggja ára.

Leikskólinn hefur starfað í fjögur ár.

Nú leitum við eftir deildarstjóra sem vill spreyta sig með yngsta stiginu og skapa einstakt námsumhverfi í nýjum leikskóla. 

Markviss málörvun á sér stað alla daga og eru framfarir og gleði barnanna eitt af því sem gera starfið ómetnalegt.

Einkunnarorð leikskólans eru: Umhyggja - gleði - vinátta

Ungbarnaleikskólinn Bríetartúni | Reykjavik

Má ekki bjóða þér að vera með!

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
  • Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
  • Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar
  • Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
  • Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun eða leyfisbréf kennara, 
  • Önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • íslenskukunnátta á stigi B2 -C1 https://www.coe.int/en/web/portfolio/self-assessment-grid

Fríðindi í starfi

  • Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsmanna 
  • Lægri leikskólagjöld í Reykjavík fyrir starfsmenn
  • 36 stunda vinnuvika
  • Heilsustyrkur
  • Sundkort/Menningarkort
  • Samgöngustyrkur

Frekari upplýsingar um störfin

Um er að ræða 100% stöðu sem er laus eftir samkomulagi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélaga.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Ben Blöndal, leikskólastjóri, sími 411-6781, tölvupóstur anna.blondal@reykjavik.is

Apply