Mannauðsráðgjafi í heimaþjónustu Austurmiðstöð
Heimaþjónusta Austurmiðstöð auglýsir eftir öflugum mannauðsráðgjafa til starfa.
Austurmiðstöð heimaþjónusta auglýsir eftir öflugum mannauðsráðgjafa til starfa. Leitað er að skipulögðum og drífandi einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði mannauðsmála í heimaþjónustu.
Um er að ræða ótímabundið starf í 100% starfshlutfalli.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf og stuðningur til stjórnenda varðandi kjaramál, vinnurétt og starfsmannamál
- Ráðningar og móttaka starfsfólks og samskipti við launaskrifstofu
- Vinna að stöðugum úrbótum á starfsumhverfi
- Ráðgjöf, kynningar og eftirfylgni vegna niðurstaða vinnustaðakannana á starfsstaðnum í samvinnu við stjórnendur
- Þáttaka í vinnuskýrslugerð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála æskileg
- Þekking og reynsla af mannauðsmálum
- Reynsla af störfum í velferðarþjónustu kostur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð skipulagshæfni og nákvæmni
- Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Heilsustyrkur
- Menningarkort Reykjavíkur
- Frítt í sundlaugar Reykjavíkur
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnheiður Þórisdóttir, ragnheidur.thorisdottir@reykjavik.is
Sími 411-9640