Til baka á starfasíðu

Mannauðsráðgjafi í heimaþjónustu Austurmiðstöð

Heimaþjónusta Austurmiðstöð auglýsir eftir öflugum mannauðsráðgjafa til starfa.

Fullt starf Heimahjúkrun efri byggð 110
Sækja um

Austurmiðstöð heimaþjónusta auglýsir eftir öflugum mannauðsráðgjafa til starfa. Leitað er að skipulögðum og drífandi einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði mannauðsmála í heimaþjónustu.

Um er að ræða ótímabundið starf í 100% starfshlutfalli.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ráðgjöf og stuðningur til stjórnenda varðandi kjaramál, vinnurétt og starfsmannamál
  • Ráðningar og móttaka starfsfólks og samskipti við launaskrifstofu
  • Vinna að stöðugum úrbótum á starfsumhverfi
  • Ráðgjöf, kynningar og eftirfylgni vegna niðurstaða vinnustaðakannana á starfsstaðnum í samvinnu við stjórnendur
  • Þáttaka í vinnuskýrslugerð

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála æskileg
  • Þekking og reynsla af mannauðsmálum
  • Reynsla af störfum í velferðarþjónustu kostur
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð skipulagshæfni og nákvæmni
  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi

  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Menningarkort Reykjavíkur
  • Frítt í sundlaugar Reykjavíkur

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnheiður Þórisdóttir, ragnheidur.thorisdottir@reykjavik.is

Sími 411-9640

Sækja um