Back to the jobs page

Holt - deildarstjóri

Leikskólinn Holt auglýsir eftir deildarstjóra í 100% starf

Holt er sex deilda leikskóli, staðsettur í tveimur húsum (Stóra-Holt og Litla-Holt) í Völvufelli 7-9 í Breiðholti. Í starfinu er lögð áhersla á málörvun og fjölmenningu. Við erum í miklu samstarfi í hverfinu um menningu, mál og læsi í Fellahverfi.

Fullt starf Leikskólinn Holt 111
Apply

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
  • Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
  • Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar
  • Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
  • Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu og samvinnu við aðra fagaðila

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og/eða leyfisbréf kennara
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði B2 að lágmarki

Fríðindi í starfi

  • Forgangur fyrir barn í leikskóla í Reykjavík og afsláttur af gjöldum
  • 36 stunda vinnuvika
  • Heilsustyrkur
  • Sundkort
  • Menningarkort
  • Samgöngustyrkur
  • Hádegismatur

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Starfið er laust frá 12.ágúst nk. Um 100% starf er að ræða

Nánari upplýsingar um starfið veitir Halldóra B. Gunnlaugsdóttir í síma 693-9882 eða senda tölvupóst á halldora.bjorg.gunnlaugsdottir@reykjavik.is 

Apply