Holt - deildarstjóri
Leikskólinn Holt auglýsir eftir deildarstjóra í 100% starf
Holt er sex deilda leikskóli, staðsettur í tveimur húsum (Stóra-Holt og Litla-Holt) í Völvufelli 7-9 í Breiðholti. Í starfinu er lögð áhersla á málörvun og fjölmenningu. Við erum í miklu samstarfi í hverfinu um menningu, mál og læsi í Fellahverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
- Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
- Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar
- Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
- Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu og samvinnu við aðra fagaðila
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og/eða leyfisbréf kennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði B2 að lágmarki
Fríðindi í starfi
- Forgangur fyrir barn í leikskóla í Reykjavík og afsláttur af gjöldum
- 36 stunda vinnuvika
- Heilsustyrkur
- Sundkort
- Menningarkort
- Samgöngustyrkur
- Hádegismatur
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Starfið er laust frá 12.ágúst nk. Um 100% starf er að ræða
Nánari upplýsingar um starfið veitir Halldóra B. Gunnlaugsdóttir í síma 693-9882 eða senda tölvupóst á halldora.bjorg.gunnlaugsdottir@reykjavik.is