Teymisstjóri eftirlits hjá Barnavernd Reykjavíkur
Barnavernd Reykjavíkur auglýsir eftir skipulögðum og metnaðarfullum einstakling í starf teymisstjóra eftirlits. Barnavernd Reykjavíkur ber ábyrgð á málum sem unnin eru á grundvelli barnaverndarlaga og heyrir undir velferðarsvið Reykjavíkurborgar.
Barnavernd Reykjavíkur auglýsir eftir skipulögðum og metnaðarfullum einstakling í starf teymisstjóra eftirlits. Barnavernd Reykjavíkur ber ábyrgð á málum sem unnin eru á grundvelli barnaverndarlaga og heyrir undir velferðarsvið Reykjavíkurborgar.
Um nýtt starf er að ræða og er starfshlutfall 100%.
Meðal helstu verkefna teymisstjóra eftirlits er ábyrgð á skipulagi umgengni fyrir tímabundnar vistanir, skipulag óboðaðs eftirlits í samstarfi við ráðgjafa, deildarstjóra og foreldra. Teymisstjóri skipuleggur jafnframt vaktir starfsmanna eftirlits, útdeilir verkefnum og hefur yfirsýn og umsjón með bókunum í eftirlitsrými. Starf teymisstjóra heyrir undir skrifstofustjóra.
Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og velferðarstefnu er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á skipulagningu óboðaðs eftirlits.
- Ábyrgð á skipulagningu umgengni undir eftirliti í samráði við önnur teymi.
- Ráðningar og mönnun eftirlitsteymis og vaktaskipulag.
- Umsjón með eftirlitsrými og yfirsýn bókana í rýmið.
- Útbúa umsagnir skv. beiðni Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála vegna veitingu á 84. gr. leyfum.
- Ábyrgð á innra eftirliti vegna barna í vistun og fóstri í samstarfi við framkvæmdastjórn.
Hæfniskröfur
- Starfsréttindi í félagsráðgjöf eða önnur sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Þekking og reynsla af barnaverndarstarfi.
- Þekking og reynsla af vinnu með börnum og fjölskyldum.
- Framúrskarandi lipurð í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Íslenskukunnátta C1 og enskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
- Ökuréttindi B
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Við bjóðum upp á
- 36 stunda vinnuviku í fullu starfi
- Heilsustyrk
- Menningarkort og frítt í sund
- Samgöngusamning
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þyrí Steingrímsdóttir í sími 4119200 eða á thyri.steingrimsdottir@reykjavik.is