Back to the jobs page

Kennsluráðgjafi óskast á Austurmiðstöð

Skóla- og frístundadeild í Austurmiðstöð auglýsir stöðu kennsluráðgjafa í grunnskólahluta lausa til umsóknar. Um er að ræða 100% starf. Staðan er ótímabundin.

Fullt starf Austurmiðstöð - grunnskólar 112
Apply

Skóla- og frístundadeild Austurmiðstöðvar var stofnuð í janúar 2022 í tengslum við verkefnið „Betri borg fyrir börn“, https://reykjavik.is/betri-borg-fyrir-born. Í skóla- og frístundadeild starfar öflugur hópur fagfólks sem sinnir þjónustu við leik- og grunnskóla og frístundastarf í austurhluta borgarinnar. Við leitum að fagmanni til að vinna með okkur að þróun verkefnisins „Betri borg fyrir börn“ með það að markmiði að koma sem best til móts við þarfir barna í hverfinu. Skóla- og frístundadeild er staðsett í Austurmiðstöð, Bíldshöfða 20og er fagleg samvinna sérfræðinga skóla- og frístundadeildar og velferðarsviðs mikil og náin. Í deildinni er unnið samkvæmt stefnu Reykjavíkurborgar í menntamálum „Látum draumana rætast.“

Helstu verkefni og ábyrgð

· Ráðgjöf og handleiðsla við starfsfólk grunnskóla um nám og kennslu, skólaþróun, áætlanagerð og skipulag skólastarfs.

· Seta í lausnateymum grunnskóla.

· Ráðgjöf og stuðningur vegna barna í grunnskóla sem glíma við námslega-, félagslega- og/eða hegðunarerfiðleika.

· Starf með börnum í daglegum aðstæðum innan skóla.

· Þátttaka í þróun stefnunnar „Betri borg fyrir börn“ með það að markmiði að styðja við starfsemi grunnskóla og nám barna.

· Þróun faglegs samstarfs og þátttaka í samstarfi fagstétta sem vinna með börnum í hverfinu.

· Umsjón með ýmis konar samstarfsverkefnum í hverfi.

· Ráðgjöf og stuðningur við foreldra.

Menntunar og hæfniskröfur

· Leyfisbréf sem kennari og kennslureynsla í grunnskóla.

· Framhaldsnám og/eða reynsla í starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf æskileg.

· Áhugi á þróun þverfaglegs starfs.

· Reynsla af starfi með börnum og ungmennum í grunnskóla.

· Þekking á aðferðum í vinnu með börnum með þroska- og hegðunarfrávik, fatlanir eða geðrænan vanda.

· Framúrskarandi samskiptahæfni og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi.

· Lipurð og færni í samskiptum, samstarfi og sveigjanleiki í starfi.

· Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og löngun til þess að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.

· Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, Góð íslenskukunnátta (B2 eða hærra samkvæmt samevrópskum matsramma).

· Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. 

Við ráðningu er gerð krafa um hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur og Skólastjórafélags Íslands

Starfshlutfall 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl 2026

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bára Birgisdóttir fagstjóri grunnskóla í skóla- og frístundadeild Austurmiðstöðvar í síma 411-1400 eða í tölvupósti: bara.birgisdottir@reykjavik.is

Apply