Back to the jobs page

Verkefnastjóri stjórnsýslu

Auglýst er til umsóknar starf verkefnastjóra stjórnsýslu á skrifstofu borgarstjórnar í Ráðhúsi Reykjavíkur. 

Fullt starf Skrifstofa borgarstjórnar 101
Apply

Skrifstofa borgarstjórnar fer með umsýslu fyrir borgarstjórn, borgarráð, forsætisnefnd og ýmsar aðrar nefndir auk þess sem hún ber ábyrgð á þjónustu við borgarfulltrúa, meðferð rekstrarleyfisumsókna og framkvæmd almennra kosninga í Reykjavík.

Helstu verkefni:

  • Móttaka erinda og undirbúningur fyrir fundi borgarráðs og borgarstjórnar.
  • Þjónusta við borgarfulltrúa og umsjón með starfsaðstöðu þeirra.
  • Umsjón með einstökum verkefnum og verkþáttum á sviði stjórnsýslu
  • Ábyrgð á málsmeðferð Reykjavíkurborgar vegna rekstrarleyfisumsókna

Hæfniskröfur:

  • Háskólagráða og framhaldsmenntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu.
  • Reynsla og hæfni af skýrri og faglegri textagerð.
  • Reynsla af teymisvinnu og skipulagshæfni.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og fagleg vinnubrögð.
  • Samstarfshæfileikar og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Íslenskukunnátta C2 og enskukunnátta B2 skv. evrópskum tungumálaramma.

Starfshlutfallið er 100% og eru launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags við Reykjavíkurborg.

Nánari upplýsingar veitir Helga Björk Laxdal, skrifstofustjóri borgarstjórnar í netfangi helga.laxdal@reykjavik.is

Apply