Verkefnastjóri stjórnsýslu
Auglýst er til umsóknar starf verkefnastjóra stjórnsýslu á skrifstofu borgarstjórnar í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Skrifstofa borgarstjórnar fer með umsýslu fyrir borgarstjórn, borgarráð, forsætisnefnd og ýmsar aðrar nefndir auk þess sem hún ber ábyrgð á þjónustu við borgarfulltrúa, meðferð rekstrarleyfisumsókna og framkvæmd almennra kosninga í Reykjavík.
Helstu verkefni:
- Móttaka erinda og undirbúningur fyrir fundi borgarráðs og borgarstjórnar.
- Þjónusta við borgarfulltrúa og umsjón með starfsaðstöðu þeirra.
- Umsjón með einstökum verkefnum og verkþáttum á sviði stjórnsýslu
- Ábyrgð á málsmeðferð Reykjavíkurborgar vegna rekstrarleyfisumsókna
Hæfniskröfur:
- Háskólagráða og framhaldsmenntun sem nýtist í starfi.
- Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu.
- Reynsla og hæfni af skýrri og faglegri textagerð.
- Reynsla af teymisvinnu og skipulagshæfni.
- Sjálfstæði, frumkvæði og fagleg vinnubrögð.
- Samstarfshæfileikar og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Íslenskukunnátta C2 og enskukunnátta B2 skv. evrópskum tungumálaramma.
Starfshlutfallið er 100% og eru launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags við Reykjavíkurborg.
Nánari upplýsingar veitir Helga Björk Laxdal, skrifstofustjóri borgarstjórnar í netfangi helga.laxdal@reykjavik.is