Back to the jobs page

Skemmtilegt og fjölbreytt sumarstarf í íbúðakjarna í árbænum

Við leitum að öflugu og áhugasömu fólki til sumarafleysingar á íbúðakjarna fyrir geðfatlað fólk. 

Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í vaktavinnu. Um er að ræða morgun-, kvöld, nætur- og helgarvaktir og er starfshlutfall eftir samkomulagi.

Fullt starf Íbúðakjarni Hraunbæ 107A 110
Apply

Um starfið

Hlutverk íbúðakjarnans er að veita íbúum aðstoð við sjálfstætt og innihaldsríkt líf með áherslu á einstaklingsmiðaða þjónustu í samræmi við stefnu Reykjavíkurborgar. Unnið er eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf með batamiðaðri nálgun að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Styðja einstakling við athafnir daglegs lífs
  • Stuðningur og aðstoð við heimilishald
  • Stuðningur til sjálfshjálpar og samfélagslegrar þátttöku
  • Fylgja eftir einstaklingsáætlunum og verklagsreglum íbúðakjarnans
  • Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa

Hæfniskröfur

  • Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri
  • Góð almenn menntun
  • Reynsla af vinnu með fólki með geðrænar áskoranir æskileg en ekki skilyrði
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og heiðarleiki í fyrirrúmi
  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta (B2 eða hærra samkvæmt samevrópskum matsramma)
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnar Þór Risten Friðjónsson í gegnum netfangið Ragnar.Thor.Risten.Fridjonsson@reykjavik.is 

Apply