Skemmtilegt og fjölbreytt sumarstarf í íbúðakjarna í árbænum
Við leitum að öflugu og áhugasömu fólki til sumarafleysingar á íbúðakjarna fyrir geðfatlað fólk.
Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í vaktavinnu. Um er að ræða morgun-, kvöld, nætur- og helgarvaktir og er starfshlutfall eftir samkomulagi.
Um starfið
Hlutverk íbúðakjarnans er að veita íbúum aðstoð við sjálfstætt og innihaldsríkt líf með áherslu á einstaklingsmiðaða þjónustu í samræmi við stefnu Reykjavíkurborgar. Unnið er eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf með batamiðaðri nálgun að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Styðja einstakling við athafnir daglegs lífs
- Stuðningur og aðstoð við heimilishald
- Stuðningur til sjálfshjálpar og samfélagslegrar þátttöku
- Fylgja eftir einstaklingsáætlunum og verklagsreglum íbúðakjarnans
- Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa
Hæfniskröfur
- Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri
- Góð almenn menntun
- Reynsla af vinnu með fólki með geðrænar áskoranir æskileg en ekki skilyrði
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Stundvísi og heiðarleiki í fyrirrúmi
- Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta (B2 eða hærra samkvæmt samevrópskum matsramma)
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnar Þór Risten Friðjónsson í gegnum netfangið Ragnar.Thor.Risten.Fridjonsson@reykjavik.is