Stuðningsráðgjafi í íbúðakjarna Sólvallagötu 79
Velferðarsvið óskar eftir að ráða stuðningsráðgjafa í nýjan íbúðakjarna Sólvallagötu 79. Um er að ræða vaktavinnu, dag, kvöld og helgarvaktir, þar sem unnið er aðra hverja helgi.
Íbúðakjarni fyrir fatlaða Sólvallagötu 79 óskar eftir stuðningsráðgjafa í framtíðarstarf. Þjónustan miðar að því að efla færni og auka sjálfstæði og lífsgæði íbúa.
Í boði er spennandi starf, þar sem veitt er einstaklingsbundin þjónusta í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.
Verkefni og ábyrgð
- Sinna faglegu starfi í samstarfi og samráði við íbúa, forstöðumann og teymisstjóra.
- Veita samstarfsstarfsmönnum leiðsögn og tilsögn um framkvæmd þjónustu.
- Sinna einstaklingsmiðaðri þjónustu og aðstoða íbúa við allar daglegar athafnir.
- Þátttaka í gerð og eftirfylgd einstaklingsáætlana.
- Tekur virkan þátt í þróunar- og uppbyggingarvinnu.
- Samvinna við starfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.
- Stuðla að virkni, velferð og vellíðan þjónustunotenda.
- Tryggir að framkvæmd þjónustunnar sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.
Hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði félags- heilbrigðis- og/eða menntavísinda
- Þekking og reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum og/eða öldruðum æskileg.
- Reynsla af stjórnun kostur.
- Reynsla og þekking af teymisvinnu æskileg.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Góð tölvukunnátta
- Íslenskukunnátta B2 eða hærra (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
- Hreint sakavottorð samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar.
Launakjör
Laun samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags
Ýmis hlunnindi fylgja því að starfa hjá Reykjavíkurborg en þau má sjá hér.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður:
Aron Freyr Hermannsson í tölvupósti:
aron.freyr.hermannsson@reykjavik.is