Sumarafleysing í íbúðarkjarna f geðfatlaða í Grafarvogi-100% starf í vaktavinnu
Leitum að drífandi starfskrafti í skemmtilegt og fjölbreytt sumarstarf með einstaklingum með geðrænar áskoranir.
Ert þú til í að vera hluti af okkar frábæru liðsheild?
Leggjum mikið upp úr styðjandi, fjölbreyttu og skemmtilegu vinnuumhverfi og góðum starfsanda.
Íbúðarkjarni fyrir geðfatlaða í Starengi Í Grafarvogi óskar eftir drífandi og jákvæðum starfsmanni með mikið frumkvæði til sumarafleysingar.
Um er að ræða 100% starfshlutfall í vaktavinnu í sumar. Vaktir geta verið morgunvaktir, kvöldvaktir, næturvaktir og helgarvaktir. Viðkomandi þarf að geta unnið allar þessar tegundir vakta.
Sumarafleysingin er frá byrjun júní til seinnihluta ágúst.
Möguleiki á tímavinnu í vetur en það er ekki krafa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hvetja og styðja íbúa til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
- Félagslegur stuðningur við íbúa.
- Aðstoð við íbúa í daglegum störfum heimilisins s.s. þrif, matseld o.fl.
- Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir og með íbúum.
Hæfniskröfur
- Góð almenn menntun.
- Félagsliðamenntun eða háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Reynsla af vinnu með geðfötluðum æskileg.
- Áhugi á málefnum geðfatlaðra.
- Reynsla af vinnu með fólki með fíknivanda er kostur.
- Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Góð íslenskukunnátta á stigi C2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
- Bílpróf skilyrði. Þarf að geta keyrt beinskiptan bíl.
- Viðkomandi þarf að vera orðinn 20 ára.
Nánari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Frekari upplýsingar um starfið veitir Eva Dögg Júlíusdóttir forstöðumaður, netfang eva.dogg.juliusdottir@reykjavik.is og sími 411-9344.