Til baka á starfasíðu

Sumarafleysing í íbúðarkjarna f geðfatlaða í Grafarvogi-100% starf í vaktavinnu

Leitum að drífandi starfskrafti í skemmtilegt og fjölbreytt sumarstarf með einstaklingum með geðrænar áskoranir. 

Ert þú til í að vera hluti af okkar frábæru liðsheild? 

Leggjum mikið upp úr styðjandi, fjölbreyttu og skemmtilegu vinnuumhverfi og góðum starfsanda.

Fullt starf Íbúðakjarni Starengi 6 112
Sækja um

Íbúðarkjarni fyrir geðfatlaða í Starengi Í Grafarvogi óskar eftir drífandi og jákvæðum starfsmanni með mikið frumkvæði til sumarafleysingar.

Um er að ræða 100% starfshlutfall í vaktavinnu í sumar. Vaktir geta verið morgunvaktir, kvöldvaktir, næturvaktir og helgarvaktir. Viðkomandi þarf að geta unnið allar þessar tegundir vakta.

Sumarafleysingin er frá byrjun júní til seinnihluta ágúst.

Möguleiki á tímavinnu í vetur en það er ekki krafa.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hvetja og styðja íbúa til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
  • Félagslegur stuðningur við íbúa.
  • Aðstoð við íbúa í daglegum störfum heimilisins s.s. þrif, matseld o.fl.
  • Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir og með íbúum.

Hæfniskröfur

  • Góð almenn menntun.
  • Félagsliðamenntun eða háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Reynsla af vinnu með geðfötluðum æskileg.
  • Áhugi á málefnum geðfatlaðra.
  • Reynsla af vinnu með fólki með fíknivanda er kostur.
  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta á stigi C2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Bílpróf skilyrði. Þarf að geta keyrt beinskiptan bíl.
  • Viðkomandi þarf að vera orðinn 20 ára.

Nánari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Frekari upplýsingar um starfið veitir Eva Dögg Júlíusdóttir forstöðumaður, netfang eva.dogg.juliusdottir@reykjavik.is og sími 411-9344.

Sækja um