Back to the jobs page

Norðlingaskóli - Umsjónarkennari á miðstig

Norðlingaskóli leitar að umsjónarkennara til starfa með kraftmiklum og skapandi starfsmannahópi í 5. - 7. bekk. Um er að ræða 100% starf skólaárið 2026-2027, frá 1. ágúst 2026. 

Fullt starf Norðlingaskóli 110
Apply

Í Norðlingaskóla er áhersla m.a. á teymiskennslu, samkennslu árganga, einstaklingsmiðað nám, smiðjuvinnu, náið samráð við foreldra, nýbreytni og skólaþróun. Allt skólastarf byggir á teymisvinnu starfsfólks.

Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með um 550 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í Reykjavík, þ.e. í Norðlingaholti. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf.

Stefna og starf skólans grundvallast á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búinn námsskilyrði svo hann megi þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.

Helstu verkefni:

  • Sinnir umsjónarkennslu og skipuleggur nám og kennslu nemenda í 5. – 7. bekk með stjórnendum og öðrum kennurum í teyminu.
  • Tekur þátt í þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Áhugi og vilji til að starfa í teymisvinnu.
  • Áhugi á rafrænum kennsluháttum.
  • Góð íslenskukunnátta er algjört skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn sína á íslensku. Senda þarf umsókn, kynningarbréf og fylgiskjöl, svo sem leyfisbréf til kennslu í gegnum vef Reykjavíkurborgar þar sem starfið er auglýst.

Starfshlutfall 100%

Umsóknarfrestur: 25. mars 2026

Ráðningarform: Tímabundin ráðning

Frekari upplýsingar um Norðlingaskóla er að finna á heimasíðu skólans: nordlingaskoli.is.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Aðalbjörg Ingadóttir, skólastjóri í síma 411-7640 eða á netfanginu adalbjorg.ingadottir@reykjavik.is

Apply