Norðlingaskóli - Umsjónarkennari á miðstig
Norðlingaskóli leitar að umsjónarkennara til starfa með kraftmiklum og skapandi starfsmannahópi í 5. - 7. bekk. Um er að ræða 100% starf skólaárið 2026-2027, frá 1. ágúst 2026.
Í Norðlingaskóla er áhersla m.a. á teymiskennslu, samkennslu árganga, einstaklingsmiðað nám, smiðjuvinnu, náið samráð við foreldra, nýbreytni og skólaþróun. Allt skólastarf byggir á teymisvinnu starfsfólks.
Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með um 550 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í Reykjavík, þ.e. í Norðlingaholti. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf.
Stefna og starf skólans grundvallast á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búinn námsskilyrði svo hann megi þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.
Helstu verkefni:
- Sinnir umsjónarkennslu og skipuleggur nám og kennslu nemenda í 5. – 7. bekk með stjórnendum og öðrum kennurum í teyminu.
- Tekur þátt í þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Hæfniskröfur:
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
- Áhugi og vilji til að starfa í teymisvinnu.
- Áhugi á rafrænum kennsluháttum.
- Góð íslenskukunnátta er algjört skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn sína á íslensku. Senda þarf umsókn, kynningarbréf og fylgiskjöl, svo sem leyfisbréf til kennslu í gegnum vef Reykjavíkurborgar þar sem starfið er auglýst.
Starfshlutfall 100%
Umsóknarfrestur: 25. mars 2026
Ráðningarform: Tímabundin ráðning
Frekari upplýsingar um Norðlingaskóla er að finna á heimasíðu skólans: nordlingaskoli.is.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Aðalbjörg Ingadóttir, skólastjóri í síma 411-7640 eða á netfanginu adalbjorg.ingadottir@reykjavik.is