Back to the jobs page

Sumarafleysing óskast á íbúðakjarna Keilugranda

Skemmtileg og fjölbreytt sumarstarf á íbúðarkjarna í vesturbænum. 

Hlutastarf Íbúðakjarni Keilugranda 107
Apply

Við leitum eftir jákvæðum, duglegum og góðhjörtuðum einstaklingum til að vera þátttakandi í að móta góða þjónustu og koma henni vandlega til skila. Keilugrandi er nýlegur íbúðakjarni í Vesturbænum og er öll aðstaða til fyrirmyndar, skemmtilegir þjónustunotendur og hér eru engir dagar eins. Fullkomið tækifæri til að fá að axla ábyrgð og valdeflast!

Um er að ræða 70%-100% vaktavinnu sem þarf að hefjast í byrjun júní. Fram að þeirri dagsetningu er upphafsdagur að einhverju leiti umsemjanlegur (dagvaktir, kvöldvaktir og helgarvaktir eftir samkomulagi).

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Styður og aðstoðar íbúa við athafnir daglegs lífs og því sem við viðkemur heimilishaldi.
  • Styður einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. rækta félagstengsl, stunda afþreyingu, sækja menningarviðburði og íþróttir.
  • Framfylgir einstaklingsáætlunum í samráði við einstaklinga og ábyrgðaraðila.
  • Skráning og meðferð gagna í samræmi við verklag starfsstaðar.
  • Tekur þátt í samstarfi við fagaðila, aðra starfsmenn og foreldra/aðstandendur.
  • Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum kostur.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi.
  • Íslenskukunnátta B1 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
  • 20 ára aldurstakmark.
Apply