Sumarafleysing óskast á íbúðakjarna Keilugranda
Skemmtileg og fjölbreytt sumarstarf á íbúðarkjarna í vesturbænum.
Við leitum eftir jákvæðum, duglegum og góðhjörtuðum einstaklingum til að vera þátttakandi í að móta góða þjónustu og koma henni vandlega til skila. Keilugrandi er nýlegur íbúðakjarni í Vesturbænum og er öll aðstaða til fyrirmyndar, skemmtilegir þjónustunotendur og hér eru engir dagar eins. Fullkomið tækifæri til að fá að axla ábyrgð og valdeflast!
Um er að ræða 70%-100% vaktavinnu sem þarf að hefjast í byrjun júní. Fram að þeirri dagsetningu er upphafsdagur að einhverju leiti umsemjanlegur (dagvaktir, kvöldvaktir og helgarvaktir eftir samkomulagi).
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Styður og aðstoðar íbúa við athafnir daglegs lífs og því sem við viðkemur heimilishaldi.
- Styður einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. rækta félagstengsl, stunda afþreyingu, sækja menningarviðburði og íþróttir.
- Framfylgir einstaklingsáætlunum í samráði við einstaklinga og ábyrgðaraðila.
- Skráning og meðferð gagna í samræmi við verklag starfsstaðar.
- Tekur þátt í samstarfi við fagaðila, aðra starfsmenn og foreldra/aðstandendur.
- Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.
Hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum kostur.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
- Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi.
- Íslenskukunnátta B1 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.
- Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
- 20 ára aldurstakmark.