Back to the jobs page

Forstöðumaður Félagsmiðstöðin 100og1

Félagsmiðstöðin 100og1 auglýsir starf forstöðumanns laust til umsóknar. Félagsmiðstöðin 100og1 er starfrækt undir frístundamiðstöðinni Tjörninni sem rekur fimm félagsmiðstöðvar og sjö frístundaheimili í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum

Fullt starf Félagsmiðstöðin 100og1
Apply

Félagsmiðstöðin 100og1 auglýsir starf forstöðumanns laust til umsóknar. Félagsmiðstöðin 100og1 er starfrækt undir frístundamiðstöðinni Tjörninni sem rekur fimm félagsmiðstöðvar og sjö frístundaheimili í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum. Félagsmiðstöðin 100og1 þjónustar Austurbæjarskóla.

Frístundamiðstöðin Tjörnin og félagsmiðstöðin 100og1 óska eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling með menntun og reynslu sem nýtist í starfi. Markmið félagsmiðstöðva er að bjóða börnum og unglingum á aldrinum 10-16 ára upp á frístundastarf sem hefur forvarnar-, uppeldis- og menntunargildi og tekur mið af aldri þeirra og þroska. Markhópur félagsmiðstöðva eru börn og unglingar á aldrinum 10-16 ára.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning á faglegu félagsmiðstöðvarstarfi fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-16 ára.
  • Leiðbeina börnum og unglingum í leik og starfi.
  • Samráð og samvinna við börn, unglinga og starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og skólaþjónustu.
  • Starfsmannamál.
  • Rekstur félagsmiðstöðvar.
  • Framkvæmd og skipulag starfsins í samvinnu við starfsmenn og ungmenni út frá viðmiðum og starfsreglum SFS.

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
  • Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum.
  • Reynsla af frítímastarfi.
  • Reynsla af stjórnun félagsmiðstöðva.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Skipulags og stjórnunarhæfileikar.
  • Góð færni í samskiptum.
  • Almenn tölvu og samskiptamiðla kunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta. 
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Vinsamlegast látið ferilskrá fylgja umsókn.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Friðmey Jónsdóttir, deildarstjóri unglingastarfs Tjarnarinnar í tölvupósti fridmey.jonsdottir@reykjavik.is 

Apply