Forstöðumaður Félagsmiðstöðin 100og1
Félagsmiðstöðin 100og1 auglýsir starf forstöðumanns laust til umsóknar. Félagsmiðstöðin 100og1 er starfrækt undir frístundamiðstöðinni Tjörninni sem rekur fimm félagsmiðstöðvar og sjö frístundaheimili í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum
Félagsmiðstöðin 100og1 auglýsir starf forstöðumanns laust til umsóknar. Félagsmiðstöðin 100og1 er starfrækt undir frístundamiðstöðinni Tjörninni sem rekur fimm félagsmiðstöðvar og sjö frístundaheimili í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum. Félagsmiðstöðin 100og1 þjónustar Austurbæjarskóla.
Frístundamiðstöðin Tjörnin og félagsmiðstöðin 100og1 óska eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling með menntun og reynslu sem nýtist í starfi. Markmið félagsmiðstöðva er að bjóða börnum og unglingum á aldrinum 10-16 ára upp á frístundastarf sem hefur forvarnar-, uppeldis- og menntunargildi og tekur mið af aldri þeirra og þroska. Markhópur félagsmiðstöðva eru börn og unglingar á aldrinum 10-16 ára.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning á faglegu félagsmiðstöðvarstarfi fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-16 ára.
- Leiðbeina börnum og unglingum í leik og starfi.
- Samráð og samvinna við börn, unglinga og starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og skólaþjónustu.
- Starfsmannamál.
- Rekstur félagsmiðstöðvar.
- Framkvæmd og skipulag starfsins í samvinnu við starfsmenn og ungmenni út frá viðmiðum og starfsreglum SFS.
Hæfniskröfur
- Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
- Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
- Reynsla af starfi með börnum og unglingum.
- Reynsla af frítímastarfi.
- Reynsla af stjórnun félagsmiðstöðva.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Skipulags og stjórnunarhæfileikar.
- Góð færni í samskiptum.
- Almenn tölvu og samskiptamiðla kunnátta.
- Góð íslenskukunnátta.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Vinsamlegast látið ferilskrá fylgja umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Friðmey Jónsdóttir, deildarstjóri unglingastarfs Tjarnarinnar í tölvupósti fridmey.jonsdottir@reykjavik.is