Umsjónarkennari á yngra stigi við Ártúnsskóla
Laus er til umsóknar staða umsjónarkennara á yngra stigi við Ártúnsskóla í 80 – 100% stöðu frá og með 1. ágúst 2026.
Laus er til umsóknar staða umsjónarkennara á yngra stigi við Ártúnsskóla í 80 – 100% stöðu frá og með 1. ágúst 2026.
Ártúnsskóli er samrekinn leikskóli, grunnskóli og frístundaheimili þar sem áhersla er lögð á að allir fái að njóta sín í leik og starfi. Hlutverk Ártúnsskóla, í samvinnu við heimilin, er að stuðla að alhliða þroska nemenda og leggja grunn að virkri þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélaði.
Nemendur í skólanum eru u.þ.b. 225. Í grunnskólanum eru 165 nemendur og í leikskólanum 60 börn ár hvert. Einkunnarorð skólans eru ÁRANGUR - VIRÐING - VELLÍÐAN. Einkunnarorðin endurspegla áherslur skólastarfsins. Stefnt er að framúrskarandi árangri, virðing borin fyrir fólki og umhverfi og fjölbreytileikanum fagnað.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu á skólastarfi og vill bætast í okkar góða hóp.
Umsókn fylgi ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar. Frekari upplýsingar um skólann má nálgast á heimasíðu hans https://artunsskoli.reykjavik.is/
Helstu verkefni og ábyrgð
· Annast kennslu nemenda í samráði við aðra kennara og skólastjórnendur.
· Stuðla að velferð nemenda í samstarfi og samráði við foreldra og annað fagfólk.
· Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í skólaþróunarvinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
· Reynsla af kennslu barna á yngra stigi er æskileg
· Lipurð og færni í mannlegum samskiptum
· Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
· Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
· Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði
· Hreint sakarvottorð.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands v/Félags grunnskólakennara
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ellen Gísladóttir skólastjóri í síma 411-7670 og tölvupósti ellen.gisladottir@reykjavik.is