Þroskaþjálfi við Melaskóla
Melaskóli óskar eftir þroskaþjálfa til starfa fyrir næsta skólaár. Um er að ræða 100% starf til framtíðar.
Laust er til umsóknar starf þroskaþjálfa við Melaskóla.
Um er að ræða 100% starf til framtíðar.
Melaskóli er grunnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum stunda um 500 nemendur nám í 1. til 7. bekk og lögð er áhersla á vellíðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góð samskipti.
Einkunnarorð skólans eru vellíðan, samvinna, metnaður og sköpunargleði.
Við leitum að einstaklingi með góða samskiptahæfni og þekkingu á skólastarfi. Einstaklingi sem hefur óbilandi trú á nemendum, er annt um velferð þeirra og er tilbúinn að taka þátt í því að móta metnaðarfullt skólastarf.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
- Vinna að fagstarfi fyrir nemendur í samræmi við starfsmarkmið SFS, starfsáætlun skólans, stefnu um skóla án aðgreiningar og menntastefnu Reykjavíkurborgar.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Helstu menntunar- og hæfniskröfur:
- Starfsleyfi til að starfa sem þroskaþjálfi
- Reynsla og þekking á sérkennslu og stuðningi í grunnskóla er æskileg
- Reynsla og þekking á starfsemi grunnskóla
- Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum
- Faglegur metnaður og frumkvæði
- Mjög góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar veitir Harpa Reynisdóttir skólastjóri, harpa.reynisdottir@rvkskolar.is, Björg Melsted aðstoðarskólastjóri bjorg.melsted@rvkskolar.is og Helga Jóna Pálmadóttir aðstoðarskólastjóri, helga.jona.palmadottir@rvkskolar.is.