Til baka á starfasíðu

Þroskaþjálfi við Melaskóla

Melaskóli óskar eftir þroskaþjálfa til starfa fyrir næsta skólaár. Um er að ræða 100% starf til framtíðar. 

Fullt starf Melaskóli 107
Sækja um

Laust er til umsóknar starf þroskaþjálfa við Melaskóla. 

Um er að ræða 100% starf til framtíðar. 

Melaskóli er grunnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum stunda um 500 nemendur nám í 1. til 7. bekk og lögð er áhersla á vellíðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góð samskipti. 

Einkunnarorð skólans eru vellíðan, samvinna, metnaður og sköpunargleði.

Við leitum að einstaklingi með góða samskiptahæfni og þekkingu á skólastarfi. Einstaklingi sem hefur óbilandi trú á nemendum, er annt um velferð þeirra og er tilbúinn að taka þátt í því að móta metnaðarfullt skólastarf.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

  • Vinna að fagstarfi fyrir nemendur í samræmi við starfsmarkmið SFS, starfsáætlun skólans, stefnu um skóla án aðgreiningar og menntastefnu Reykjavíkurborgar.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Helstu menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi til að starfa sem þroskaþjálfi
  • Reynsla og þekking á sérkennslu og stuðningi í grunnskóla er æskileg
  • Reynsla og þekking á starfsemi grunnskóla
  • Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum
  • Faglegur metnaður og frumkvæði
  • Mjög góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar veitir Harpa Reynisdóttir skólastjóri, harpa.reynisdottir@rvkskolar.is, Björg Melsted aðstoðarskólastjóri bjorg.melsted@rvkskolar.is og Helga Jóna Pálmadóttir aðstoðarskólastjóri, helga.jona.palmadottir@rvkskolar.is.

Sækja um