Back to the jobs page

Deildarstjóri stoðþjónustu

Melaskóli leitar að deildarstjóra stoðþjónustu í 100% starf til framtíðar. 

Fullt starf Melaskóli - Sérkennsla stuðf. 107
Apply

Melaskóli er grunnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum stunda um 500 nemendur nám í 1. til 7. bekk og lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, vellíðan nemenda og góð samskipti. Einkunnarorð skólans eru vellíðan, samvinna, metnaður og sköpunargleði.

Við leitum að einstaklingi með góða samskiptahæfni og þekkingu á skólastarfi, sem hefur óbilandi trú á nemendum, áhuga á menntun þeirra og velferð. Einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í því að móta metnaðarfullt skólastarf og stuðla að öflugri stoðþjónustu við skólann.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipuleggur og hefur umsjón með stoðþjónustu skólans ásamt því að sinna starfsmannahaldi, styðja við starfsfólk stoðþjónustunnar og veita faglega ráðgjöf.
  • Stuðlar að jákvæðri náms- og skólamenningu og vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Boðar og stýrir skilafundum og er tengiliður skólans við sérfræðinga og stofnanir sem tengjast stoðþjónustu skólans.
  • Heldur utan um skimanir og greiningar nemenda, aflar og miðlar upplýsingum innan sem utan skóla vegna nemenda sem glíma við áskoranir og vinnur að einstaklingsáætlunum í samstarfi við sérkennara
  • Stýrir fundum nemendaverndarráðs og lausnateymis og er í samskiptum við fulltrúa þeirra. 
  • Vinnur með tengilið farsældar samkvæmt farsældarlögum.
  • Sinnir öðrum störfum og verkefnum sem honum eru falin af skólastjórnendum og falla undir verksvið deildarstjóra stoðþjónustu.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara og/eða menntun á sviði sérkennslu, þroskaþjálfa, atferlisþjálfa eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af sérkennslu
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði, umburðarlyndi og víðsýni
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki
  • Skipulagshæfileikar
  • Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti

Í starfsáætlun Melaskóla má lesa nánar um skólann. 

Um er að ræða 100% starf til framtíðar.

Nánari upplýsingar veitir Harpa Reynisdóttir skólastjóri, harpa.reynisdottir@rvkskolar.is, Björg Melsted aðstoðarskólastjóri bjorg.melsted@rvkskolar.is og Helga Jóna Pálmadóttir aðstoðarskólastjóri, helga.jona.palmadottir@rvkskolar.is.

Apply