Deildarstjóri stoðþjónustu
Melaskóli leitar að deildarstjóra stoðþjónustu í 100% starf til framtíðar.
Melaskóli er grunnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum stunda um 500 nemendur nám í 1. til 7. bekk og lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, vellíðan nemenda og góð samskipti. Einkunnarorð skólans eru vellíðan, samvinna, metnaður og sköpunargleði.
Við leitum að einstaklingi með góða samskiptahæfni og þekkingu á skólastarfi, sem hefur óbilandi trú á nemendum, áhuga á menntun þeirra og velferð. Einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í því að móta metnaðarfullt skólastarf og stuðla að öflugri stoðþjónustu við skólann.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggur og hefur umsjón með stoðþjónustu skólans ásamt því að sinna starfsmannahaldi, styðja við starfsfólk stoðþjónustunnar og veita faglega ráðgjöf.
- Stuðlar að jákvæðri náms- og skólamenningu og vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Boðar og stýrir skilafundum og er tengiliður skólans við sérfræðinga og stofnanir sem tengjast stoðþjónustu skólans.
- Heldur utan um skimanir og greiningar nemenda, aflar og miðlar upplýsingum innan sem utan skóla vegna nemenda sem glíma við áskoranir og vinnur að einstaklingsáætlunum í samstarfi við sérkennara
- Stýrir fundum nemendaverndarráðs og lausnateymis og er í samskiptum við fulltrúa þeirra.
- Vinnur með tengilið farsældar samkvæmt farsældarlögum.
- Sinnir öðrum störfum og verkefnum sem honum eru falin af skólastjórnendum og falla undir verksvið deildarstjóra stoðþjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara og/eða menntun á sviði sérkennslu, þroskaþjálfa, atferlisþjálfa eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sérkennslu
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði, umburðarlyndi og víðsýni
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki
- Skipulagshæfileikar
- Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Í starfsáætlun Melaskóla má lesa nánar um skólann.
Um er að ræða 100% starf til framtíðar.
Nánari upplýsingar veitir Harpa Reynisdóttir skólastjóri, harpa.reynisdottir@rvkskolar.is, Björg Melsted aðstoðarskólastjóri bjorg.melsted@rvkskolar.is og Helga Jóna Pálmadóttir aðstoðarskólastjóri, helga.jona.palmadottir@rvkskolar.is.