Back to the jobs page

Leikskólakennari Leikskólinn Geislabaugur - tímabundinn ráðning

Ef þú ert metnaðarfullur Leikskólakennari, leikskólaliði eða starfsmaður með sambærilega menntun og langar að vera með okkur í liði að byggja upp faglegt starf og skemmtilegar stundir.

Þá er Geislabagur vinnustarðurinn.

Óskilgreint hlutfall Leikskólinn Geislabaugur 113
Apply

Leikskólinn Geislabaugur er 5 deilda leikskóli með 104 börnum. Aðal áhersla er lögð á að börnunum líði vel og blómstri í leikskólanum. Við horfum til hugmyndafræði Reggio Emilia þar sem börnum er gefið frelsi til sköpunar og leiks í fallegu og hvetjandi umhverfi.

Leikskólinn er í innleiðingu nýju menntastefnu Reykjavíkurborgar með aðaláherslu á félagsfærni og sjálfseflingu þar sem við styðjumst við jákvæðan aga sem við erum einnig að innleiða. Einkunnarorð og gildi leikskólans eru Virðing-sköpun-gleði-jafnrétti.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Fríðindi í starfi

  • Menningarkort/Bókasfnskort
  • Samgögnustyrkur
  • Sundkort
  • Heisuræktarstyrkur
  • 36 stunda vinnuvikak fyrir fullt starf

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntunog Leyfisbréf kennara.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum og starfi.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnnaður
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Um er ræða fullstaf strax eða eftir samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningum hlutaðeigandi stéttarfélags og Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þóra Jóna Jónatansdóttir í síma 4113860 og í tölvupósti thora.jona.jonatansdottir@reykjavik.is 

Apply