Leikskólakennari Leikskólinn Geislabaugur - tímabundinn ráðning
Ef þú ert metnaðarfullur Leikskólakennari, leikskólaliði eða starfsmaður með sambærilega menntun og langar að vera með okkur í liði að byggja upp faglegt starf og skemmtilegar stundir.
Þá er Geislabagur vinnustarðurinn.
Leikskólinn Geislabaugur er 5 deilda leikskóli með 104 börnum. Aðal áhersla er lögð á að börnunum líði vel og blómstri í leikskólanum. Við horfum til hugmyndafræði Reggio Emilia þar sem börnum er gefið frelsi til sköpunar og leiks í fallegu og hvetjandi umhverfi.
Leikskólinn er í innleiðingu nýju menntastefnu Reykjavíkurborgar með aðaláherslu á félagsfærni og sjálfseflingu þar sem við styðjumst við jákvæðan aga sem við erum einnig að innleiða. Einkunnarorð og gildi leikskólans eru Virðing-sköpun-gleði-jafnrétti.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Fríðindi í starfi
- Menningarkort/Bókasfnskort
- Samgögnustyrkur
- Sundkort
- Heisuræktarstyrkur
- 36 stunda vinnuvikak fyrir fullt starf
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntunog Leyfisbréf kennara.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum og starfi.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnnaður
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Um er ræða fullstaf strax eða eftir samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningum hlutaðeigandi stéttarfélags og Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þóra Jóna Jónatansdóttir í síma 4113860 og í tölvupósti thora.jona.jonatansdottir@reykjavik.is