Sumarstarfsfólk í Grasagarði Reykjavíkur
Ert þú með græna fingur?
Þá gæti sumarstarf í Grasagarðinum í Laugardal verið starf fyrir þig.
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir sumarliðum við garðyrkju í Grasagarði Reykjavíkur. Grasagarðurinn er staðsettur í Laugardalnum og er safn lifandi plantna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn umhirða garðsins, s.s. illgresishreinsun og viðhald.
- Aðstoða garðyrkjufræðinga garðsins við vinnu í safndeildum garðsins.
- Unnið er að mestu leyti utandyra.
Hæfnikröfur
- Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri.
- Reynsla af störfum í garðyrkju æskileg.
- Samskiptafærni, nákvæmni í vinnubrögðum og stundvísi.
- Íslensku og/eða enskukunnátta, A2 skv. samevrópskum tungumálaramma.
Frekari upplýsingar um starfið
- Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Eflingar.
- Um fullt starf í tímavinnu og tímabundna ráðningu er að ræða.
- Vinnuvika starfsfólks Reykjavíkurborgar er 36 klst.
- Nánari upplýsingar um starfið veitir Hjörtur Þorbjörnsson, forstöðumaður Grasagarðsins, í síma 411-8650 eða með tölvupósti hjortur.thorbjornsson@reykjavik.is