Til baka á starfasíðu

Sumarstarfsfólk í Grasagarði Reykjavíkur

Ert þú með græna fingur? 

Þá gæti sumarstarf í Grasagarðinum í Laugardal verið starf fyrir þig. 

Fullt starf Grasagarður, sumarstarfsfólk 104
Sækja um

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir sumarliðum við garðyrkju í Grasagarði Reykjavíkur. Grasagarðurinn er staðsettur í Laugardalnum og er safn lifandi plantna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn umhirða garðsins, s.s. illgresishreinsun og viðhald.
  • Aðstoða garðyrkjufræðinga garðsins við vinnu í safndeildum garðsins.
  • Unnið er að mestu leyti utandyra.

Hæfnikröfur

  • Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri.
  • Reynsla af störfum í garðyrkju æskileg.
  • Samskiptafærni, nákvæmni í vinnubrögðum og stundvísi.
  • Íslensku og/eða enskukunnátta, A2 skv. samevrópskum tungumálaramma.

Frekari upplýsingar um starfið

  • Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Eflingar.
  • Um fullt starf í tímavinnu og tímabundna ráðningu er að ræða.
  • Vinnuvika starfsfólks Reykjavíkurborgar er 36 klst. 
  • Nánari upplýsingar um starfið veitir Hjörtur Þorbjörnsson, forstöðumaður Grasagarðsins, í síma 411-8650 eða með tölvupósti hjortur.thorbjornsson@reykjavik.is 
Sækja um