Back to the jobs page

Ljúft og lærdómsríkt sumarstarf er að bíða eftir þér!

Ef þig langar í skemmtilegt og þroskandi sumarstarf ertu á réttum stað!

Fullt starf Reykjavíkurborg
Apply

Um starfið:

Við leitum eftir jákvæðum, duglegum og góðhjörtuðum einstaklingum til að vera þátttakandi í að móta góða þjónustu og koma henni vandlega til skila. Í Árskógum er frábær starfshópur, skemmtilegir þjónustunotendur og hér eru engir dagar eins. Árskógar er nýlegur íbúðakjarni í Breiðholti og er öll aðstaða til fyrirmyndar. 

Um er að ræða 85 til 100% vaktavinnu sem hefst í byrjun júní (dagvaktir, kvöldvaktir og helgarvaktir), eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

Veita stuðning sem miðar að því að efla félagsfærni og sjálfstæði, tryggja þátttöku innan og utan heimilis, auka lífsgæði og virkni í samfélaginu.

Hæfniskröfur:

  • Góð almenn menntun og íslenskukunnátta (C1).
  • Frumkvæði, stundvísi, sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Gilt ökuskírteini.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki er ekki skilyrði.

Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og vera með hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið:

ellen.bjorg.bjornsdottir@reykjavik.is

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Apply