Ljúft og lærdómsríkt sumarstarf er að bíða eftir þér!
Ef þig langar í skemmtilegt og þroskandi sumarstarf ertu á réttum stað!
Um starfið:
Við leitum eftir jákvæðum, duglegum og góðhjörtuðum einstaklingum til að vera þátttakandi í að móta góða þjónustu og koma henni vandlega til skila. Í Árskógum er frábær starfshópur, skemmtilegir þjónustunotendur og hér eru engir dagar eins. Árskógar er nýlegur íbúðakjarni í Breiðholti og er öll aðstaða til fyrirmyndar.
Um er að ræða 85 til 100% vaktavinnu sem hefst í byrjun júní (dagvaktir, kvöldvaktir og helgarvaktir), eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Veita stuðning sem miðar að því að efla félagsfærni og sjálfstæði, tryggja þátttöku innan og utan heimilis, auka lífsgæði og virkni í samfélaginu.
Hæfniskröfur:
- Góð almenn menntun og íslenskukunnátta (C1).
- Frumkvæði, stundvísi, sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Gilt ökuskírteini.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki er ekki skilyrði.
Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og vera með hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið:
ellen.bjorg.bjornsdottir@reykjavik.is
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.