Frá vegferð til veruleika

Ársskýrsla þjónustu- og nýsköpunarsviðs 2025

Umhverfis- og skipulagssvið

Á árinu 2025 var áfram unnið markvisst að því að styrkja stafræna innviði, bæta yfirsýn og auka samhæfingu verkefna innan umhverfis- og skipulagssviðs.

Verkefnavinna ársins einkenndist af framhaldi á þeirri umbreytingu sem hófst á fyrri árum, með áherslu á einföldun ferla, bætt gagnastreymi og aukna skilvirkni í þjónustu.

Forgangsröðun og samhæfing

Stofnun verkefnaráðs innan sviðsins hefur styrkt forgangsröðun og yfirsýn verkefna. Ráðið metur og forgangsraðar bæði innri verkefnum og þeim sem fara í framkvæmd hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði. Þetta verklag hefur stuðlað að markvissari ákvarðanatöku og auknu gagnsæi.

Tæknihópur sviðsins var jafnframt endurvakinn með fulltrúum frá öllum skrifstofum. Hlutverk hópsins er að styðja við samræmda þróun, miðla upplýsingum milli eininga og efla samstarf við stafrænan leiðtoga sviðsins.

Stafræn umbreyting og kerfisinnleiðingar

Áfram var unnið að innleiðingu og þróun lykilkerfa sem styðja við starfsemi sviðsins. Gæðahandbókin Varða var tekin í notkun hjá sviðinu og hefur styrkt samræmi í verklagi og gæðastjórnun.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hóf fulla notkun á eftirlitskerfinu HERA eftir umfangsmikla undirbúnings- og innleiðingarvinnu. Kerfið er nú í vörustýringu hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði og heldur þróun áfram í samstarfi við birgja með áherslu á bætta yfirsýn og eftirfylgni.

Nýtt umsóknarviðmót byggingarleyfa var tekið í notkun sem hefur einfaldað umsóknarferla og samskipti við notendur. Á sama tíma var eldra kerfi, Erindreki, lagt niður sem hluti af einföldun kerfaumhverfis og fækkun eldri lausna.

Teikning af húsi og lista sem táknar að úttekt sé lokið.

Bætt þjónusta og stafrænar lausnir

Áfram var unnið að þróun og einföldun umsóknarferla í takti við stefnu borgarinnar um stafræna þjónustu. Áhersla var lögð á að draga úr handvirkri skráningu, bæta gagnagæði og stytta afgreiðslutíma.

Unnið var að greiningu og undirbúningi að tengingu Minna síðna við landupplýsingakerfið LUKR, með það að markmiði að flytja gögn sjálfvirkt á milli kerfa. Samhliða var þróuð kortavirkni sem gerir umsækjendum kleift að skrá staðsetningar beint í umsókn. Þetta einfaldar ferlið, bætir yfirsýn og dregur úr þörf fyrir frekari samskipti.

Fyrsti áfangi verkefnisins beinist að innleiðingu þessarar virkni í lykilumsóknum, svo sem umsóknum um matjurtagarða, stöðuleyfi og útiveitingar á borgarlandi. Jafnframt voru fleiri umsóknir færðar í stafrænt form, þar á meðal umsóknir um torg í biðstöðu og göngugötukort. Verkefnið styður við áframhaldandi sameiningu þjónustu borgarinnar á einum stað og bætt aðgengi notenda.

Greining var framkvæmd á notkun ábendingavefs Reykjavíkurborgar, þar sem sviðið tekur á móti meirihluta ábendinga. Unnið er að tengingu við Jira beiðnakerfi til að bæta utanumhald og stytta viðbragðstíma, og ný útgáfa vefsins var tekin í notkun.

Sjálfvirkni, gögn og rekstur

Frávikaskráning fyrir sorphirðu var innleidd í Microsoft Teams sem styður við markvissari skráningu og bættar mælingar.

Þá var unnið að Power Apps lausn fyrir Grænu skrefin sem gerir starfsstöðvum kleift að fylgjast með framvindu aðgerða á gagnsæjan hátt.

Unnið var að greiningu og undirbúningi frekari þróunar á stafrænum lausnum í sorphirðu með áherslu á bætta gagnasöfnun og yfirsýn.

Teikning af starfsmanni sorphirðu með brúna tunnu við sorphirðubíl.

Innviðir og tækniverkefni

Endurnýjun umferðarljósabúnaðar lauk á árinu, þar sem eldri búnaður var uppfærður í áreiðanlegri lausnir. Jafnframt var brugðist við útfösun 3G fjarskiptakerfis með nauðsynlegum tæknilegum aðlögunum til að tryggja áframhaldandi virkni umferðarljósa.

Þróunarverkefni

Unnið var að undirbúningi innleiðingar verkefnastjórnunarkerfis sem liður í frekari eflingu verkefnastjórnunar. Þá lauk tilraunafasa rafhlaupahjólaverkefnis þar sem hagnýting rauntímagagna er notuð til að leggja mat á áhrif og möguleika slíkra lausna í borgarumhverfinu.

Árið einkenndist af áframhaldandi framþróun í átt að einfaldari, samhæfðari og stafrænum rekstri. Með aukinni samþættingu kerfa, bættri yfirsýn og styrkingu innviða hefur sviðið eflt getu sína til að veita skilvirka þjónustu og styðja við sjálfbæra þróun borgarinnar.