Einstaklingsbundnar þjónustuáætlanir

Fatlað fólk sem hefur þörf fyrir viðvarandi þjónustu félags-, mennta- og heilbrigðiskerfisins getur átt rétt á einstaklingsbundinni þjónustuáætlun. Áætluninni er ætlað að tryggja samfellu og gæði með því að skýra hlutverk og þjónustuveitingu hvers og eins aðila. Notandi kemur að gerð einstaklingsbundinnar þjónustuáætlunar.  

Á ég rétt á þjónustuáætlun? 

Einstaklingsbundin þjónustuáætlun er fyrir fatlað fólk sem notar þjónustu margra ólíka kerfa, meðal annars velferðarþjónustu. 

Hvernig sæki ég um þjónustuáætlun? 

Ráðgjafi á þjónustumiðstöð á að eiga frumkvæði að gerð einstaklingsbundinnar þjónustuáætlunar. Notandi getur einnig átt frumkvæði að því að áætlun sé gerð með því að ræða við ráðgjafa sinn.  
 

 

Hvernig virkar áætlunin? 

Ráðgjafi á þjónustumiðstöð vinnur einstaklingsbundna þjónustuáætlun í samvinnu við notanda og samstarfsaðila frá öðrum þjónustukerfum. Í henni koma fram markmið þjónustunnar, hlutverk og samspil ólíkra kerfa og hvernig samskipti og miðlun upplýsinga eiga að fara fram.

 

Aðilar sem koma að einstaklingsbundinni þjónustuáætlun mynda þjónustuteymi sem vinnur að markmiðum áætlunarinnar. Ef notandi hefur athugasemdir við framkvæmd eða óskar eftir því að gera breytingar leitar hann til ráðgjafa síns á þjónustumiðstöð.