Domus Vox

Tónlistarskóli

Laugavegi 116
105 Reykjavík

Ljósmynd af húsnæði Domus Vox

Um Domus Vox

Söngskólinn Domus Vox var stofnaður haustið 2000 af Margréti J. Pálmadóttur söngkonu og kórstjóra. Sérstaða skólans er kórastarf stúlkna og kvenna og samstarf þeirra á milli með einstöku tónleikahaldi.

Einsöngsdeild Domus Vox þjónustar nemendur innan og utan kóranna frá forskólaaldri til fullorðins ára. Öflugt barna- og unglingastarf veitir nemendum nauðsynlega undirstöðu til að taka þátt í söngstarfi, sem einstaklingur eða í hópum.

Undirstaða námskrafna er aðalnámsskrá tónlistarskóla auk áralöngu kórastarfi Margrétar. Hvert barn á að geta fundið sér leið að framhaldi í söngnámi alveg til fullorðinsára. Nemendur koma fram reglulega innan skólans og utan með misstóru tónleikahaldi.

Til að ná þessum markmiðum eru eftirfarandi deildir starfandi við sönghúsið Domus Vox:

Söngnám:

  • Fornám - syngjandi forskóli kór 1 og 2, aldur 4-12 ára
  • Grunndeild - unglingastig 12-14 ára, grunnstig 14 ára og eldri
  • Miðdeild - 15 ára og eldri
  • Framhaldsdeild - 18 ára og eldri, lýkur með opinberum tónleikum
  • Kirkjudeild (Aurora) - Kammerkór innan Domus vox
  • Námskeið - Skapandi söngstarf í ýmsum tónlistarstílum
  • Einkatímar á söngkortum - fyrir allan aldur
  • Syngjandi forskóli - fyrir stúlkur 4-7 ára
  • Stúlknakór Reykjavíkur - fyrir stúlkur á aldrinum 7-18 ára
  • Aurora - fyrir dömur 18-29 ára
  • Cantabile - kvennakór fyrir konur frá 50 ára aldri.
  • Vox feminae - kvennakór fyrir konur frá 25 ára aldri
  • HappyHour kórinn - kvennakór fyrir konur frá 25-40 ára

Skólastjóri er Margrét Pálmadóttir