Dalbraut 21–27

Félagsstarf

Dalbraut 21–27
104 Reykjavík

""

Opnunartími

Félagsstarfið á Dalbraut 18–20 er opið alla virka daga kl. 9:00–16:00

  • Hádegismatur kl. 11:30–12:30 alla daga (gestir þurfa að panta hádegismat fyrir kl. 13 daginn áður í síma 588 9533)
  • Síðdegiskaffi kl. 15:00–16:00 alla daga
  • Kvöldmatur kl. 18:00 alla daga
  • Kvöldkaffi kl. 19:30 alla daga

Dagskrá

Mánudagur

  • 09:00–16.00 Opin handavinnustofa / kaffi
  • 10:30 Óli og Embla, annan hvern mánudag
  • 14:00 Pílukast

Þriðjudagur

  • 09:00–16:00 Opin handavinnustofa / kaffi
  • 09:30 Bænastund
  • 13:30 Vöfflukaffi fyrsta þriðjudag hvers mánaðar
  • 13:30 Bingó er þriðja þriðjudag hvers mánaðar
  • 14:00–15:00 Samverustund og upplestur, með djákna, annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar

Miðvikudagur

  • 09:00–16:00 Opin handavinnustofa / kaffi
  • 14:00 Boccia / göngutúr

Fimmtudagur

  • 09:00–16:00 Opin handavinnustofa/kaffi
  • 11:00 Stólayoga í bókastofu
  • 13:30 Söngstund með Sigrúnu, annan hvern fimmtudag

Föstudagur

  • 09:00–16:00 Opin handavinnustofa/kaffi
  • 14:00 Vist (nema síðasta föstudag í mánuði)
  • 14:00 Messa og messukaffi, síðasta föstudag í mánuði

Aðrir viðburðir auglýstir nánar á auglýsingatöflu. Guðþjónusta er síðasta föstudag hvers mánaðar.

Þjónusta

  • Verslun er opin í húsinu mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá kl.10:30-12:30. Umsjón með verslun og húsi hefur Ásgerður Sigurðardóttir
  • Hárgreiðslustofa Hafdísar - opið virka daga kl. 10:00–17:00, tímapantanir í síma 411 2508
  • Fótaaðgerðastofa Kristínar - opið virka daga eftir þörfum, tímapantanir eru í síma 567 1087 og gsm 895 7391
  • Baðþjónusta - sími 411 2500

Strætó

Strætisvagnar sem stoppa nálægt eru leiðir 12 og 14.

Um félagsstarfið

Um er að ræða þjónustu sem er opin öllum Reykvíkingum án sérstakra skilyrða. Ekki þarf að sækja sérstaklega um þátttöku í félagsstarfi, aðeins að mæta á staðinn. Ef fyrirhuguð er þátttaka í ákveðnum námskeiðum eða ferðum þarf að skrá hana.

Starfræktar eru 17 félagsmiðstöðvar víðsvegar um borgina sem eru opnar Reykvíkingum á öllum aldri. Markmið  félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstundastarf auk fjölda námskeiða. Félagsstarfið er vettvangur samfunda, mannlegra samskipta og skapandi athafna. 

Félagsstarfið er vettvangur samfunda, mannlegra samskipta og skapandi athafna. 

Deildarstjóri félagsstarfs á Dalbraut er Rannveig Ernudóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur og virkniþjálfi.