Breyting á eldri eignaskiptayfirlýsingu – gátlisti
Vertu viss um að eignaskiptayfirlýsingin þín innihaldi allt sem við á.
Forsíða og inngangur
Forsíða
Eftirfarandi þarf að koma fram:
- Staðfang (heiti og númer)
- Sveitarfélag
- Landeignanúmer
- Matshlutanúmer (byggingu á að jafnaði að skrá sem einn matshluta)
Inngangur (breyting frá eldri eignaskiptayfirlýsingu)
Taktu fram þegar verið er að:
- Breyta eignarhaldi á rýmum. Þegar verið er að breyta eignarhaldi á rýmum vegna sölu þá þarf að láta þinglýsa afsali líka.
- Breyta eignarhaldsnúmeri vegna breytinga á röðun rýmisnúmera þá þarf það að koma skýrt fram.
- Að sameina matshluta.
- Fjölga fasteignum og úr hvaða fasteignum er verið að mynda þær nýju.
- Sameina fasteignir, hvaða fasteignanúmer stendur eftir og hvaða fasteignanúmer falla niður við sameiningu.
Taktu fram þegar fella á niður þinglýsta eignaskiptayfirlýsingu og vísaðu í þinglýsingarnúmer hennar.
Grundvöllur
Nafn höfundar eignaskiptayfirlýsingar og kennitala með tilvísun í:
- Lög um fjöleignarhús 26/1994 með síðari breytingum
- Reglugerð um eignaskiptayfirlýsingar og útreikning hlutfallstalna 910/2000
- IST 50:1998
- Skráningarreglur FMR og byggingarfulltrúa frá árinu 2005
- Reglugerð um skráningu staðfanga 577/2017
- Lög um skráningu og mat fasteigna 6/2001
- Samþykktar aðalteikningar sem yfirlýsing byggir á
- Þinglýstar heimildir, réttindi og kvaðir
Blaðsíðufjöldi yfirlýsingar.
Blaðsíðufjöldi fylgiskjala ásamt skýringum á þeim.
Frávik
Ef frávik eru frá samþykktum aðaluppdráttum og/eða samþykktri skráningartöflu þá þarf í samráði við byggingarfulltrúa að gera frávikskafla í eignaskiptayfirlýsingu auk teikningar sem gerir grein fyrir frávikum.
Lóð
Eftirfarandi þarf að koma fram:
- Eignarform lóðar
- Gildistími lóðarleigusamnings ef lóð er leigulóð með tilvísan í þinglýsingarnúmer
- Notkun og stærð lóðar. Gerðu grein fyrir hlutdeild allra matshluta í lóð ef fleiri en einn. Tilgreindu tengsl milli matshluta á lóð og hugsanlega á öðrum lóðum
- Fjöldi bílastæða á lóð og eignarhald (sbr. bílastæði fyrir framan bílskúr)
- Sérstök réttindi/kvaðir, ákvæði skipulagsskilmála og lóðarhluta t.d. undir verandir ef eigendur hafa komist að samkomulagi um slíkt
Byggingarréttur
Byggingarréttur
Eftirfarandi þarf að koma fram:
Byggingarréttur, ef hann er til staðar, skv. 28. gr. laga um fjöleignarhús.
Ef byggingarréttur er á lóð sem á að fá fasteignanúmer, þá þarftu að hafa áætlaða/þekkta hlutdeild í lóð vegna hans og geta hans í lýsingu eigna á sama hátt og gert er við aðrar eignir.
Lýsing byggingar
Lýsing byggingar
Eftirfarandi þarf að koma fram:
- Notkun matshluta
- Aðalbyggingarefni
- Fjöldi hæða og byggingarár samkvæmt heimildum
- Heildarstærð
- Birt flatarmál og brúttórúmmál matshluta skv. skráningartöflu
Lýsing á sameign sumra
Lýstu sameign sumra, rými og búnaði og hvaða eignarhlutum sameignin tilheyrir; sérstökum réttindum/skyldum.
Lýsing á sameign allra
Lýstu sameign allra, rými og búnaði; sérstökum réttindum/skyldum.
Orkumæling
Lýsing hitakostnaðar
Lýstu skiptingu hitakostnaðar.
Taktu fram:
- Fjölda hitaveitumæla, staðsetningu og inntak í húsi.
- Fjölda kaldavatnsmæla ef um slíkt er að ræða, staðsetningu þeirra og inntak í húsi.
- Skiptingu kostnaðar vegna séreigna og sameigna ef mælir er sameiginlegur. Hafðu hlutfallstölublað úr skráningartöflu sem fylgiskjal.
Lýsing rafmagnskostnaðar
Taktu fram:
- Fjölda rafmagnsmæla, staðsetningu þeirra og inntak í húsi.
- Áætlaða rafmagnsnotkun ef þess þarf. Lýstu skiptingu kostnaðar vegna sameignar og kostnaðar milli eigna ef um slíkt er að ræða.
Kvaðir
Ef kvaðir eru á eignum eða í lóðarleigusamningi þá skal geta þess hér.
Vísið í þinglýsingarnúmer skjalsins ef kvaðir eru þinglýstar
Lýsing séreigna
Lýstu séreign og notaðu vinnublaðið „lýsing“ úr skráningartöflunni þar sem kemur fram lýsing á séreign, fasteignanúmer og eignarhaldsnúmer eigna, birt heildarstærð og sundurliðaðar stærðir rýma, sem skilgreind eru sérstaklega í skráningartöflunni.
Taktu fram í lýsingunni staðfang eignarinnar ef eignin hefur sérinngang. Hægt er að fá upplýsingar um staðfang hjá byggingarfulltrúa.
Taktu fram í lýsingunni hlutfallstölur séreignarinnar í matshluta, heildarhúsi, lóð, hita og sameign sumra ef við á.
Staðfesting
Eftirfarandi þarf að koma fram:
Nafn og kennitala höfundar.
Gerðu ráð fyrir eftirfarandi undirritunum, ef við á:
- Undirritun þinglýstra eiganda og kaupsamningshafa
- Undirritun vegna heildarhúss
- Undirritun byggingarfulltrúa
- Undirritun húsfélags
Fylgiskjöl
- Samþykktir aðaluppdrættir (áritaðir/stimplaðir ásamt samþykktri skráningartöflu (samantektarblað úr töflu)
- Hlutfallstölur úr vinnublaðinu hlutfallstölur
- Auðkenning rýma með rýmisnúmerum og litum (afmörkun rýma samkvæmt rýmum í skráningartöflu)
- Fráviksteikning og/eða skráningartafla með frávikum (með samþykki byggingarfulltrúa)